Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 386 . mál.
Nd.
1228. Breytingartillögur
við frv. til. l. um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands.
Frá allsherjarnefnd.
1. Við 1. gr.
a. Í stað 2. tölul. V. Árnessprófastsdæmi komi tveir nýir töluliðir svohljóðandi:
2. Stóranúpsprestakall:
Stóranúps- og Ólafsvallasóknir. Prestssetur: Tröð.
3. Hraungerðisprestakall:
Hraungerðis-, Villingaholts- og Laugardælasóknir.
Prestssetur: Hraungerði.
b. 5. tölul. V. Árnessprófastsdæmi orðist svo:
5. Selfossprestakall:
Selfosssókn.
2. Við 3. gr. Í stað orðsins „þremur“ í síðari málslið 3. mgr. komi: fjórum.
3. 2. mgr. 42. gr. orðist svo:
Vígslubiskup í Skálholti hefur með höndum prestsþjónustu í Skálholtsprestakalli. Skal hann njóta aðstoðarþjónustu nágrannapresta eða farprests.
4. 48. gr. falli brott.
5. Við ákvæði til bráðabirgða:
a. Í stað orðanna „sameiningu prestakalla“ í fyrri málslið 2. tölul. komi: breytingar á prestakalla- og prófastsdæmaskipaninni.
b. Í stað „1998“ í niðurlagi 6. tölul. komi: 1995.